09 maí 2007

I´m just a girl...

2 dagar eftir af læknisfræðinni.
Var búin að vera með hræðilega hræðilegan hnút í maganum og ekki náð andanum í nokkra daga. Viss um að prófstressið væri svona algjörlega að fara með mig, þó mér væri nú ekki að ganga alveg það illa.
Á mánudag píndi mamma mig út til að skoða útskriftarföt. Keyptum kjól og ég læknaðist!
Var eftir allt með svona gífurlegt kjólastress en ekki svo mikið prófstress. Núna rennur lestur og matur ljúflega niður og ég get ekki beðið eftir að klára...
....og útskrifast í kjólnum.
Fór aftur í kringlu áðan og keypti topp sem ég fæ í verðlaun ef ég verð dugleg...Kalli búinn að lofa að skila honum annars.
Ég er líklegast óttalegur stelpukjáni eftir allt...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gangi þér vel með að klára læknisfræðina. Rúllar þessu eflaust upp ef ég þekki þig rétt og verður fyrirmyndarlæknir sem allir hringja í þegar þeir slasa sig eða hósta smávegis :)
Jessica

Nafnlaus sagði...

Hæ!
Til haminjgu með að vera búin! Góða skemmtun í NY!:)

Unknown sagði...

Púff! Búin? Til hamingju - þú telst hér með formlega orðin stór. :)

-grímur